Thursday, 7 August 2008

Fiskur og rúgbrauð

Núna er Helgi í Stokkhólmi og ég ákvað að hafa soðin fisk í kvöldmatinn því að Helgi er ekkert mjög hrifinn af soðnum fiski.
Ég hugsaði með mér að gott væri að hafa rúgbrauð með.....en því miður fæst ekki rúgbrauð hérna í Svíþjóð. Þannig að ég bakaði bara rúgbrauð. En það þarf nú að ákveða það með mjög góðum fyrirvara að baka rúgbrauð því að það tekur 6-7 klst. í ofni! En ég hef nú bakað þetta brauð oft áður og finnst það mjög gott og alveg þess virði að bíða eftir því. Reyndar nennti ég ekki oft að baka rúgbrauð þegar við bjuggum á Íslandi því að það er hægt að kaupa svo gott brauð þar.

Helgi kemur seinnipartinn á morgun til baka frá Stokkhólmi og svo fara börnin í barnaafmæli á laugardaginn.

Og svo er að koma að því.....ég kem til Íslands á laugardagskvöldið. Vonandi verður ekki mikil seinkun í fluginu....hef heyrt að það sé búið að vera mikið vesen með flugið núna undanfarið. En ég á að lenda uppúr hálfellefu um kvöldið.

Ég er orðin svo nammiþyrst eftir íslensku nammi að ég get ekki beðið eftir að komast í fríhöfnina og kaupa djúpur, bobbinga, þrist og svona lakkrístengt nammi. Svo ætla ég að borða skyr og fisk á meðan ég er á landinu.
Það verður skrítið að vera á Íslandi og alveg barnlaus! En það verður örugglega alveg frábært þó svo að ég eigi eftir að sakna þeirra. Þetta er nú ekki langur tími, verð eiginlega bara frá 10-15.ágúst því að ég fer ekki frá Lundi fyrr en um kvöldmatarleytið á laugardagskvöldið 9.ágúst.

2 comments:

Anonymous said...

Hlakka til að sjá þig á landinu okkar góða.
Dugleg að baka rúgbrauð. Aldrei hef ég orðið svo fræg. Mamma bakaði það reyndar oft.
knús til ykkar - sk

Anonymous said...

Velkomin heim :o) Er ekki stíft planið þegar að þú kemur heim svona stutt. Mundu að njóta þess ... að vera barnlaus ... það er sko yndislegt af og til.
Kv. Hafdís