Þá erum við fjölskyldan komin heim í Lund eftir vikudvöl á Íslandi.
Við höfðum það alveg stórfínt og bara gaman að kíkja á klakann þó svo að það hefði verið ískalt allan tímann.
Við kíktum í heimsóknir, Helgi var reyndar að vinna alla vikuna en ég og krakkarnir fundum okkur eitthvað til dundurs.
Rakel heimsótti Hrafnhildi vinkonu sína, Arnar Ingi heimsótti Atla og Magnús vini sína, við fórum á skauta í skautahöllinni og heimsóttum Villa, Huldu og fjölskyldu og Önnu Maríu, Árna og fjölskyldu. Svo var auðvitað kíkt á tengdafjölskylduna. Sigrún Karls kíkti tvisvar í heimsókn í Vesturás og svo Villi og fjölskylda einnig tvisvar. Nóg að gera að hitta vini og ættingja, svaka gaman.
Við Helgi fórum út að borða á La Primavera og það var rosalega góður matur.
Já, ég gleymdi að nefna einn hlut.....við keyptum okkur bíl á Íslandi.....við ætlum að hafa hann til umráða þegar við erum stödd á landinu og í millitíðinni leggjum við bara inn númerin og þá þurfum við ekkert að borga tryggingar né bifreiðagjöld á meðan.....sniðugt! Pabbi hans Helga ætlar að geyma hann inni í flugskýlinu sínu á meðan, hugsið ykkur dekrið sem bílinn fær, inni allan veturinn! En sem sagt þá er þetta Toyota Corolla árg. 2006, og einungis keyrður 26þús km. Vonandi hittum við á gott eintak, kemur í ljós!
En njótið það sem eftir er helgarinnar, það ætlum við að gera, búin að kveikja upp í kamínunni og einnig á kertum, ætlum að hafa það kósý!