Tuesday, 25 November 2008

Blogg leti

Það er einhver blogg leti í mér þessa dagana en vonandi nenni ég að halda áfram að blogga þó svo að það sé bara einu sinni í viku, stefni alla vega á blogg einu sinni í viku.
Það er svo sem ekkert nýtt að gerast, rútínan alveg í fyrirrúmi :)
Vorum með matarboð á laugardaginn og buðum Adda, Helgu og strákunum þeirra. Það var rosa gaman að hitta þau og spjalla.
Bakaði piparkökur með krökkunum á sunnudaginn og þau voru með vini sína í heimsókn og allir svakalega ánægðir, krakkarnir skreyttu svo piparkökurnar og átu fullt og vinirnir tóku síðan með sér piparkökur heim.
Jörðin er ennþá hvít hjá okkur og vægt frost úti. Það er reyndar spáð skýjuðu og hita næstu daga eins langt og spáin nær, það er reyndar týpískur vetur í Lundi, ca 5°c hiti, grátt og skýjað. Þannig var allur fyrravetur, bara skrýtið að það hafi komið snjór og búinn að endast svona lengi.
Helgi farinn til Stokkhólms og kemur aftur á föstudaginn.
Svo er íslendingaballið á laugardaginn með lambalæri, hangikjöti og íslenskri hljómsveit, það verður örugglega stuð að vera á balli með íslendingunum og líklega bara sungin íslensk lög.
Hlakka til!

No comments: