Friday, 28 November 2008

Helgin....

.....er bókuð!
Eins og venjulega eru það karate og skautar hjá krökkunum. Svo er íslendingaballið annað kvöld, spennandi!
Á sunnudaginn er svo verið að kveikja á jólaljósum í miðbænum og hellings skemmtiatriði, jólasveinn og fleira. Það er heilmikið prógramm allan sunnudaginn í bænum þannig að við verðum örugglega stóran hluta úr deginum þar.
Svo á auðvitað að kveikja á fyrsta aðventukertinu. Var að setja kerti í stjaka og svo býst ég við að ég skreyti aðeins, já, hvenær? á sunnudaginn en alla vega á þriðjudaginn, hef tíma þá, mánudagar alltaf frekar þéttir hjá mér.

Og smá fréttir.....mamma og pabbi eru að koma í heimsókn á fimmtudaginn 4.desember.....gaman, gaman, hlakka til að fá þau. Þau stoppa líklega fram á föstudaginn 12.desember, eru ekki búin að kaupa miða til baka, gera það bara með stuttum fyrirvara. Þau ætla að passa fyrir Villa og Huldu þann 13.desember þannig að þau verða komin til Íslands fyrir þann tíma. Og svo erum við að fara í jólatívolíið í Köben þann 12.des.

Góða helgi til ykkar allra!

2 comments:

Anonymous said...

það er sko eins gott að þau verði komin heim þá því annars vitum við ekki hvað við gerum hahahahaha smá grín kv. hulda og Villi

Anonymous said...

En annars skemmtið ykkur vel á ballinu það er ekki svo oft sem þið farið á dansiball saman krakkarnir verða örugglega ánægð að fá pössun frá ykkur því líkar þeim ekki svo vel við stelpuna kv Bakkastaðir