Það snjóaði hjá okkur í dag! Svaka gaman!
Veðurspáin sagði að það yrði kalt í dag og næstu daga sem spáin nær. En það hefur varla snjóað í Lundi frá því að við fluttum þannig að við vorum mjög ánægð með að fá snjó núna. Hvað hann endist er annað mál, jörðin er hvít en ekkert magn af snjó samt.
Við settum vetrardekkin undir bílinn í gær, alveg á réttum tíma.
Róleg helgi framundan, skautar, karate og laugardagsnammi leiðangur. Keila hjá Arnar Inga með karate hópnum seinnipartinn á morgun. Kannski hægt að fara að renna á snjósleða ef snjóinn heldur.
Ætla að bjóða einhverjum í mat annað kvöld, ekki búin að ákveða hverjum.
Stefnum á það að leyfa krökkunum að baka og skreyta piparkökur á sunnudaginn.
Góða helgi!
Friday, 21 November 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment