Jæja, þá er rútínan komin í gang og það er bara mjög þægilegt. Eins og það er gaman að vera í fríi og ferðast þá er alltaf gott að komast í rútínu aftur.
Sem sagt, skóli hjá krökkunum, sundnámskeið hjá Rakel, skátar hjá Arnari Inga og svo laugardagsrútínan, skautar hjá Rakel og karate hjá Arnari Inga.
Ekkert planað ennþá þessa helgina nema að kannski baka eitthvað gott með krökkunum. Langar að prófa eitthvað nýtt núna, maður festist oft í að gera það sama því það er þægilegt og maður veit að það er gott, en það kemur í ljós hvað verður!
Thursday, 6 November 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment