Friday, 14 November 2008

Jæja.....

....Arnar Ingi góður af magapínunni, fór í skólann í dag.
Svo eru auðvitað fastir liðir, karate og skautar á morgun. Ég fer svo í stelpupartý annað kvöld, gaman, gaman.
Svo er þó nokkuð planað næstu helgar.
29.nóvember er svokallað "1.des" ball hjá íslenska kórnum í Lundi og þar verður boðið uppá íslenskt lambalæri og fleira.
6.desember er svo matarhittingur hjá saumaklúbbnum og mökum og allir ætla að leggja með sér til borðs.
12.desember erum við svo að fara til Köben í jólatívolíið og ætlum að gista eina nótt í Köben. Ætlum að vera í tívolíinu á föstudeginum og eyða svo laugardeginum í bæjarrölti.
13.desember er svo jólaglögg og afmæli hjá einum maka í saumaklúbbnum.
Svo inn á milli eru svona krakkaskemmtanir t.d lúsíuhátíð í skólanum, keila með karate, jólaball íslendingafélagsins og söngskemmtun hjá bekknum hans Arnar Inga. Þetta er alla vega það sem við vitum um.
En hafið þið góða helgi!

1 comment:

Anonymous said...

Mikið um að vera hjá ykkur. Gaman.
Hér fer maður bara og mótmælir á Austurvelli.
knús til ykkar
sk