Tuesday, 18 November 2008

Tíminn líður

Já, svakalega líður tíminn hratt, finnst ég nýbúin að blogga en sá svo að það var á föstudaginn.
En fór sem sagt í afmælispartý á laugardagskvöldið hjá Ingu og það var svaka fínt. Indverskur matur og notalegheit. Bara stelpur og kjaftað og tíminn bara flaug.
Í kvöld er svo saumaklúbbur hjá sama genginu og þá fáum við köku og gotterí....hlakka til! Er búin að vera alveg hræðileg í mataræðinu í næstum 2 vikur og sé ekki fram á að hætta því neitt, því miður.
En ég er alla vega byrjuð í ræktinni og vona að það hægi á fitusöfnum meðan ég haga mér svona í sætindunum.
Svo er bara að fara að baka fyrir jólin, já ég segi fyrir jólin því ég veit að það verður ekkert til sem ég baka um jólin, allt búið! Ætla að leyfa krökkunum að baka og skreyta piparkökur og svo á ég bara eftir að finna eitthvað annað gott til að baka.
Hlakka til þegar fyrsti í aðventu kemur því þá ætla ég að hengja upp jólaljósin og skreyta smá, ég bíð alltaf spennt og byrja snemma.
En hafið það gott á fróni, við erum búin að kveikja upp í kamínunni og höfum það kósý!

No comments: