Wednesday, 10 December 2008

Þau eru ennþá....

.....hjá okkur, mamma og pabbi, gaman!
Við erum búin að þvælast í bæinn og keyra aðeins um.
Fórum í gær í jólatívolí í Köben. Tókum lestina frá Lundi til Köben. Það var reyndar rigning en við vorum undir það búin og dressuðum okkur upp í regnfötum og með regnhlífar.
Rakel og Helgi keyptu band um úlnliðinn til að fara í öll tækin. Rakel er svo mikill tívolí fíkill að það dugar ekkert annað en bandið.
Arnar Ingi er ekkert fyrir tækin, hann er með svo lítið hjarta :)
Ég fór með Arnar Inga og leyfði honum að fara í að skjóta niður bolta, fara lukkuhjól og þess háttar. Hann var mjög ánægður með það og fékk ýmis konar smádrasl og bangsa.

Við Helgi fórum í matarboð á laugardag til Ingu og Baldurs. Allir komu með mat á borðið og úr varð þessi glæsilega veisla í góðum félagsskap. Við vorum 14 manns, ein hjónin duttu út því þau fengu ekki pössun. Á veisluborðinu voru lambalæri, brúnaðar kartöflur, waldorfsalat, gular baunir, rauðkál og góðar sósur. Þetta var alveg frábært. Í eftirrétt var svo piparkökuostakaka, alveg ótrúlega góð.
Vel heppnað kvöld. Svo erum við að fara í annað matarboð á laugardagskvöldið 13.desember en þá verða mamma og pabbi farin og ekki hægt að nota þau í að passa! En við erum með svo góða sænska stelpu sem passar að það er ekkert mál.

No comments: