Já, ég vaknaði kl.6:20 í morgun við drunur og að rúmið mitt hristist og skalf. Mjög óþægileg tilfinning eins og svo margir íslendingar vita. Arnar Ingi vaknaði líka og spurði af hverju allt hristist. Rakel svaf eins og steinn og varð ekki vör við neitt.
Helgi er í Stokkhólmi þessa vikuna og slapp við allt saman. Við Arnar Ingi kúrðum svo bara saman og spjölluðum þangað til við fórum á fætur rúmlega 7.
Annars er allt gott að frétta héðan. Jólakortin fóru í póst í gær. Reyndar gerðum við nokkrar tilraunir að taka myndir af krökkunum en það náðust ekki góðar myndir. Sendum bara skástu myndina.
Bakaði smákökutegund um helgina og gerði konfekt. Ætla svo að búa til ís næstu helgi.
Við fórum í matarboð til Sigga og Siggu á laugardaginn og það var alveg stórskemmtilegt, góður matur og gaman.
Fórum svo á skautasýningu hjá Rakel á sunnudaginn, hún skautaði sem lítil lúsía, algjört krútt.
Svo er ég með saumaklúbb í kvöld og ætla að gera eitthvað góðgæti fyrir hópinn.
Tuesday, 16 December 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment