Wednesday, 31 December 2008

Áramót

Þá er enn einu árinu að ljúka, alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Nú erum við búin að búa í Svíþjóð eitt og hálft ár.
Árið 2008 er bara búið að vera mjög gott og við ánægð með það. Þá er bara að halda áfram að hafa það gott og líða vel árið 2009. Það er alla vega áramótaheitið, hafa það gott og líða vel!

Jólin eru búin að vera alveg yndisleg hjá okkur. Krakkarnir bara búin að vera nokkuð þæg en þau eru líka búin að ráða sér svolítið sjálf, fá að vera í tölvu og horfa á sjónvarp svona nokkurn veginn eftir þeirra höfði. Það eru auðvitað svo margir vinir þeirra sem eru ekki heima þannig að við leyfum þeim að hafa ofan af fyrir sér eins og þau vilja. En það styttist svo sem í rútínuna og reglurnar aftur.
Á sunnudaginn buðum við Adda, Helgu og börnum í kaffi og það var svaka gaman að hitta þau.
Í gær komu svo Magga, Björn Ingi og Ragnar Helgi í kaffi og það var líka svaka gaman að hitta þau. Við ætlum svo að kíkja til þeirra í kvöld eftir matinn og skjóta upp flugeldum saman.

Skólinn hjá krökkunum byrjar svo ekki fyrr en 8.janúar og ég held að þau verði nú bæði sátt og ósatt við að byrja, gaman að hitta vinina en ekki gaman að þurfa að fara að læra, alla vega Arnar Ingi þolir ekki að læra.

En við fjölskyldan óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs og hafið það sem allra best!

No comments: