Thursday, 18 December 2008

Skólastjórinn

Hann er alveg frábær skólastjórinn í skólanum hjá krökkunum. Í gær kom ég að sækja þau og þá var verið að syngja sænskar jólavísur og dansa í kringum jólatréið. Og í miðjunni var skólastjórinn með gítar og söng hástöfum.
Hann tekur yfirleitt þátt í söngstundum á föstudögum með skólanum og spilar þá á gítar og syngur.
Í sumar þegar það var sumarhátíð og krakkarnir voru að syngja fyrir foreldrana þá sat skólastjórinn með kúluhatt og þverslaufu og spilaði undir.
Hann tekur mikinn þátt í skólastarfinu og fer að vinna í eldhúsinu ef svo stendur á. Skólinn er lítill og mjög heimilislegur. Hann er með börn frá 1 árs til 12 ára.
En því miður á að breyta þessu og börnin verða eingöngu til 10 ára aldurs þarna. Það er mjög mikil ásókn í þennan skóla en svo er annar stærri skóli í hverfinu sem er ekkert sérstaklega vinsæll. Þannig að nú á að breyta og hámarksaldur í skóla krakkana verður 9 ára. Það lítur því miður út fyrir að Arnar Ingi þurfi að breyta um skóla þegar hann fer í 10 ára bekk en það góða við það er svo sem að allur bekkurinn fer með honum í sama skóla. Ekki nema að við verðum komin með heimþrá þá fara börnin bara í Fossvogskóla haustið 2010. En það er alla vega engin heimþrá hjá okkur núna....kemur bara allt í ljós!

No comments: