Saturday, 13 December 2008

Nóg að gera

Það er nóg að gera hjá okkur þessa helgina. Arnar Ingi var að taka beltapróf í karate og er núna kominn með gula beltið.
Núna er hann í afmæli hjá Bernhard besta vini sínum og Laura vinkona Rakelar er í heimsókn hjá henni. Ég er að baka súkkulaðibitakökur og gera rocky road nammibita.
Við erum svo að fara í matarboð til Siggu og Sigga í kvöld.
Á morgun er svo skautasýning og lúsiuhátið hjá skautafélaginu sem Rakel er að æfa.
Helgi fer svo til Stokkhólms á mánudag fram til fimmtudags.
Og svona inn á milli núna þá er ég að reyna að skrifa jólakortin, erum að verða svolítið sein að senda þau héðan frá Svíþjóð en það reddast vonandi.....annars verða þetta bara milli jóla og nýárskort!

Mamma og pabbi fóru til Íslands í gær.
Á fimmtudeginum skruppum við í bíltúr til Ystad. Ef að þið hafið lesið eða séð bíómyndir með Wallander þá er það í þessum bæ sem hann er lögga. Ystad er mjög skemmtilegur bær, gamall og vel varðveittur, fín göngugata og strönd. Það búa um 17.000 manns í Ystad.

No comments: