Wednesday, 3 December 2008

Þau eru á leiðinni

Já, mamma og pabbi koma í heimsókn til okkar á morgun.....hlakka til, fæ þá líka lakkrís ;)

Við fórum á íslendingaballið á laugardaginn og það var bara nokkuð gaman. Þetta var pínu þorrablótslegt, sviðasulta og rófustappa í forrétt, hangikjöt og uppstúfur í aðalrétt og svo kökuhlaðborð með t.d kleinum, pönnukökum og smákökum í eftirrétt.
Svo söng kórinn og smá skemmtiatriði og þar voru meðal annars kallar að syngja í lopapeysum og gúmmískóm, svona sveitalegt en gaman.
Magga og Björn Ingi voru með okkur á ballinu og svo settust hjón við hliðina á okkur. Við byrjuðum að spjalla við þau og vorum á spjallinu allan tímann. Þetta eru hin viðkunnalegustu hjón og frúin er heimavinnandi en reyndar nóg að gera því að tvö eldri börnin eru í skóla í Malmö og það þarf að skutla fram og til baka. Svo eru þau með einn 3 ára sem má bara fá 15 klst á leikskóla á viku því að mamman er heimavinnandi þannig að hann er bara í leikskóla þri,mið og fimmtudaga. Hjónin heita Sigga og Siggi.
En alla vega þá kíkti ég í heimsókn til Siggu í gærmorgun og það var mjög gaman. Þau búa í bæ hérna rétt hjá Lundi sem heitir Bjärred.
Svo núna eru þau búin að bjóða okkur í mat laugardaginn 13.desember.
Við erum einnig að fara í matarboð laugardaginn 6.desember þar sem allir leggja á borð með sér og við ætlum að notafæra okkur mömmu og pabba til að passa! Hentugt að hafa þau í heimsókn.
Svo er ferð í tívolíið í Köben föstudaginn 12.desember, sem sagt nóg að gera og bara gaman!

No comments: