Fór í golfkennslu í morgun í svakalegum hita. Gekk aðeins betur, ekki vel en ekki eins illa og áður. Og þá var golfið pínulítið skemmtilegra. Held að það sé að koma tími á það að fara 9 holur með Helga fljótlega til að finnast þetta kannski gaman.
Ég og krakkarnir fórum svo á ströndina seinnipartinn því að það var ekki hægt að vera í garðinum vegna hita og ekki hægt að hanga inni með krakka sem rífast og slást. Helgi var inni að vinna (vona ég).
Það var líka hrikalegur hiti á ströndinni og sjórinn bara heitur, ekki mikil kæling í honum en samt betra að bleyta sig aðeins. Það er að byrja geitungatími hérna og maður fann fyrir því á ströndinni og svo er allt morandi í maríubjöllum sem setjast á mann í gríð og erg. Fyrstu bjöllurnar fannst mér bara sætar en svo eftir fimmtíu bjöllur fer maður að pirrast!
Áfram hiti næstu daga en svo er spáð skúrum um helgina.
Tuesday, 29 July 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Þetta er nú meira veðrið:) og meira segja fáum við að vera með í hitabylgjunni hér á íslandi:) bara gaman:)
kv.Ásdís
Post a Comment