Tuesday, 26 August 2008

Golfkennsla

Fór í golfkennslu í morgun. Er ekki að standa mig neitt sérstaklega vel. Þyrfti að fara sjálf einhvern tímann, það nægir víst ekki að fara í kennslu og æfa sig svo ekkert meira. Hef aldrei farið út á golfvöll að spila....er alltaf að stefna á það en þá þurfum við Helgi að redda pössun og það vantar ömmu og afa til að passa! En hver veit hvað gerist? Segi frá því ef ég fer út á golfvöll einhvern tímann á þessu ári!


2 comments:

Anonymous said...

Bara að hella sér í golfið :o) mikið held ég að það sé skemmtilegt. Hef prufað og ætla mér að gera þetta. ER ekki bara málið að skella krökkunum á púttvöllinn á meðan að þið æfið ykkur. Best að koma þeim í þetta strax....
Eru þið farnar að plana afmælið hennar Rakelar? Við erum varla byrjuð. Agalegt ástand á þessum bæ.
Kv. Hafdís

Elsa M. Finnsdóttir said...

Hæ Hafdís, já ég er farin að plana afmælið hennar Rakelar því ég og Arnar Ingi förum til Íslands 5-11.september og skvísan á eins og þú veist afmæli 12.sept. Þannig að það verður haldið upp á það í Skattkammarön (svipað og Veröldin okkar) og ég er búin að panta þar. Svo er bara að senda boðskort til krakkana áður en við förum til Íslands. kv.Elsa