Friday, 1 August 2008

Veðurblíðan tekur enda

Nú er veðurblíðan að verða búin hjá okkur. Á morgun á að vera skýjað og um 20°c hiti. Ég er reyndar dauðfegin því að eftir tveggja vikna stanslausa sól og hita þá fær maður leið! En ætli ég verði ekki farin að þrá gott veður á mánudag aftur!
Framtíðarspáin er svo skúrir eftir helgi.

Á morgun ætlum við að bjóða í smá pizzupartý til okkar og svo á sunnudag ætlar Arnar Ingi að bjóða tveimur bestu vinum sínum í smá síðbúna afmælisveislu og bjóða upp á köku. Svo förum við með krakkana og vinina í Skattkammaröen, sem er risastórt leiksvæði (svipað og Veröldin okkar nema margfalt stærra) með veitingasölu og foreldrar eru með börnunum inni á svæðinu.
Þar vonumst við til að þau eyði fullt af sykurorku og svo bjóðum við upp á pylsu og ís.

Þetta verður sem sagt verslunarmannahelgin okkar hér í Lundi. En hafið það gott á Íslandi um helgina og allir að fara varlega!

2 comments:

Anonymous said...

Skemmti þið ykkur vel um helgina. Það er sko enn bongó blíða á Íslandinu góða. Ótrúlegt hreint.
Kv. Hafdís

Anonymous said...

Knús á ykkur:) og hafið það gott:)
kv.Ásdís