Já, það er sko þvílíkt ástand í fjármálunum á Íslandi.....bara allt að verða kolvitlaust!
Við stressumst nú líka upp hérna því að við eigum nú eitthvað inn á banka á Íslandi, við vonum bara að það fari enginn banki á hausinn.
Maður finnur nú líka fyrir spennu í fjármálageiranum hérna í Svíþjóð og það er einnig stress í gangi hérna vegna bankanna en ekki líkt því eins og á Íslandi....en allt getur nú breyst á einum degi og við vonum að ástandi hérna endi ekki eins og á klakanum.
Krakkarnir fóru í vettvangsferð með skólanum í gær og komu til baka eins og reykt hangikjöt það var svo sterk reykjarlykt af þeim, það hefur greinilega logað vel í grilli og pylsum í ferðinni.
Ég er að fara í hádegishitting á morgun með íslensku skólafélögunum sem ég var með í sænsku náminu síðasta vetur.
Rakel byrjar á skautanámskeiði á laugardaginn þannig að við þurfum að fara í leiðangur og kaupa skauta á dömuna á morgun.
Tuesday, 30 September 2008
Sunday, 28 September 2008
Helgin
Arnar Ingi fór í karate á laugardagsmorguninn og hann er sko alveg að "fíla" það. Fórum svo á smá bæjarflakk og krakkarnir keyptu sér dót í Toys r us. Rakel fékk pening í afmælisgjöf og var að kaupa sér gjöf og Arnar átti pening sem hann var búinn að safna.
Emelie barnapía kom svo kl.18:30 og krakkarnir mjög ánægð að sjá hana. Magga og Björn Ingi sóttu okkur Helga og við fórum svo öll í matarboð til Adda og Helgu. Þau voru með íslenskt lambalæri á kolagrilli og þvílíkt gott! Alveg frábær máltíð og frábært kvöld í frábærum félagsskap. Næsti matarklúbbur verður svo í byrjun nóvember eftir að við komum frá Íslandi.
Rakel fór í afmæli til Elinar og Tristan sonur Elvu Bjarkar er í heimsókn hjá Arnari Inga. Tristan er einnig með Arnari Inga í karate og ég kynntist Elvu Björk í sænskunáminu. Kynntist reyndar Adda þar líka og svo kom í ljós að Helga konan hans er úr Árbænum og við þekktum hvor aðra! Og Magga er líka úr Árbænum og þekkti Helgu þannig að stofnaður var þessi skemmtilegi matarklúbbur.
Er að baka köku og ætla bjóða strákunum upp á í drekkutímanum. Hafið það gott!

Tuesday, 23 September 2008
Tannsi
Við hjónin fórum til tannlæknis í dag í árlega skoðun. Reyndar er liðið meira en ár því að við fórum til tannsa áður en við fluttum til Svíþjóðar. En þegar ég lét loksins verða af því að finna tannlækni handa okkur þá þurftum við að bíða í 7 vikur eftir tíma! En það var allt í lagi fyrst að engin var tannpínan! Það var sem sagt allt í þessu fína með tennurnar í okkur.
Í kvöld er svo saumklúbbur hjá mér og það er nú frekar langt síðan ég hitti þann hóp, held að það séu komnir tveir mánuðir. Ég missti nefnilega af þessu fína matarboði um mánaðarmótin sem hópurinn og makar voru með því að ég skrapp til Íslands.
Á laugardaginn er svo matarklúbbur með öðrum íslendingum og það er líka orðið ansi langt síðan hann var því að við höfum verið í útlöndum og á flakki á sitthvorum tímanum í allt sumar. En það er loksins komið að því að hittast aftur....hlakka til!

Sunday, 21 September 2008
Mamma farin
Þá er mamma flogin frá okkur enn eina ferðina. Hún var samferða okkur Arnari Inga frá Íslandi þann 11 september og var ekki ákveðin hvenær hún færi heim aftur því hún hafði bara keypt sér aðra leiðina. En hún ákvað sem sagt í gær að fara heim til Íslands í dag. Svo sá hún hálfpartinn eftir því í morgun þegar sólin skein og fallegt haustveður í lofti. Spáin hjá okkur er góð 14-16°c hiti og þurrt.....annað en veðrið á Íslandi, þess vegna var mamma svona hikandi við að fara heim, bara rigning og rok í íslensku veðurspánni.
En hún sér okkur fljótlega aftur því við ætlum að koma til Íslands í vetrarfríi krakkana í skólanum. Helgi fer til Íslands 19.október að vinna og ég og krakkarnir komum 24.október og svo förum við öll saman heim til Lundar þann 1.nóvember. Við gripum þarna frábært tilboð frá Iceland Express og ákváðum þess vegna að koma í heimsókn! Við ætlum að halda jólin hérna heima hjá okkur í Lundi þetta árið!

Saturday, 20 September 2008
Göngutúr
Fórum í göngutúr í nágrenninu meðan Helgi bakaði Toscana köku (svipuð og sjónvarpskaka). Það tók á móti okkur kökuilmurinn þegar við komum til baka....nammi, namm!
Karate
Arnar Ingi er byrjaður í karate einu sinni í viku, finnst það rosalega skemmtilegt. Arnar Ingi er í gula bolnum.
Thursday, 18 September 2008
Tuesday, 16 September 2008
Nýja tölvan hennar mömmu
Helgi að sýna/kenna mömmu á nýju fartölvuna sem hún keypti sér. Núna eru fjórar tölvur í gangi á þessu heimili í Lundi!
Monday, 15 September 2008
Haustlaukar
Ég og mamma fórum í smá búðarrölt í dag og kíktum í "Blómaval" svíanna sem heitir Plantagen. Þar verslaði ég haustlauka, páskaliljur og krókusa. Keypti svo tvö silkiblóm til að hafa sumarið lengra. Við mamma plöntuðum síðan öllu úti og nú er ég með haustlauka í jörðu og gervi/silkiblóm ofan jörðu :) Þá er bara að sjá í vor hver afraksturinn verður.
Stefnum að því að fara í meira búðarráp á morgun, fara í "mall" í Malmö!

Saturday, 13 September 2008
Afmælisveisla
Afmælisbarnið og partur af afmælisgestum að bíða eftir pylsum.
Afmælisveisla Rakelar var haldin í Skattkammarön í Lundi. Þar var sko fjör og gaman, trampólin, hoppukastalar, rennibrautir og alls konar leiktæki. Börnin skemmtu sér konunglega og við foreldrarnir ánægðir með að hafa allan hópinn að hamast þarna en ekki heima hjá okkur :) Mjög þægilegt að fara svo bara heim til sín og þá er afmælið bara búið....ekki mesta vinnan eftir að ganga frá! Kannski verða þetta bara framtíðarbarnaafmælin hjá okkur....hver veit?
Friday, 12 September 2008
Afmælismáltíð
Fórum á hamborgarastaðinn Max að ósk afmælisbarnsins. Þar var gætt sér á hamborgurum, frönskum og svo ís á eftir. Krakkarnir hömuðust einnig í hoppukastalanum sem er á staðnum.
Rakel 6 ára, 12.september 2008

Vakin með söngi á afmælisdaginn.

Svo syfjuð.

En rosalega ánægð með pakkann. Littlest pet shop í uppáhaldi núna.
Wednesday, 10 September 2008
Fullt að gera
Við Arnar Ingi erum búin að hafa það aldeilis gott hérna á Íslandi.
Arnar Ingi fór í heimsókn til Atla vinar síns á mánudaginn og þangað kom einnig Atli James vinur þeirra. Svo var okkur boðið í mat til Katrínar og Heklu Maríu og fengum fisk, namm,namm.
Í gær fórum við í svona eftirá afmælisveislu til Hannesar Arons sem varð 6 ára þann 3.september. Anna María var með kræsingar á boðstólnum og Hafdís og Svandís komu líka....gaman að hitta þær allar!
Við Arnar fórum svo í heimsókn til afa í Bjarmó. Tinna frænka átti 6 ára afmæli og við skildum eftir gjöf hjá henni því að hún var ekki heima þegar við komum. Arnar Ingi færði einnig Ágústi Karel og Köru smá pakka líka.
Ég fór svo með Guðrúnu á Ruby Tuesday í gærkvöldi og þar var sko spjallað og borðað.
Erum svo að fara að hitta Elísabetu núna í hádeginu, matarboð hjá Villa og Huldu í kvöld og svo er kaffihúsakvöld með stelpunum úr matarklúbbnum/Árbænum.
Ætla að reyna að finna einhverja glufu til að pakka í tösku því við erum svo að fara heim til Svíþjóðar á morgun....og mamma kemur með okkur!

Tuesday, 9 September 2008
Sunday, 7 September 2008
Helgin
Byrjuðum laugardagsmorguninn á að kíkja í Bjarmaland að hitta tengdó/afa og ömmu.
Arnar Ingi fór svo að heimsækja Magnús vin sinn og þar var einnig Sindri félagi þeirra. Þeir léku sér heillengi saman en í hamagangi milli Magnúsar og Sindra brotnaði úr tönn í Magnúsi. Það var brunað með Magnús til tannlæknis og Arnar Ingi beið inni hjá tannlækninum meðan gert var við tönn Magnúsar. Síðan héldu þeir aftur heim til Magnúsar að leika.
Í dag, sunnudagsmorgun var farið á fjölskyldudag Toyota við Esjuna. Byrjað var á að planta trjám við Esjurætur og svo fært sig aðeins um set á fjölskylduhátíðina.
Það var boðið upp á grillaðar pylsur, gos/svala og prins póló. Einnig var andlitsmálun fyrir krakkana og hoppukastali.
Keppt var í hreysti/fitness þraut og reyndu margir á þol og styrkleika sinn. Farið var í reipitog, pokahopp og keppt í stoppdansi. Í lokin fengu allir krakkar verðlaunapening og skólahreystihúfu.
Svo fórum við Arnar Ingi í bíó og sáum Wall E. Arnar var ánægður með myndina. Fengum lambahrygg og tilheyrandi góðgæti í kvöldmatinn.

Toyota dagurinn

Leikið í hoppukastala.

Keppt í reipitogi.

Frændsystkin.

Verðlaun fyrir að taka þátt í fjölskyldudeginum hjá Toyota.
Fjölskyldudagur Toyota við Esjuna

Arnar Ingi að gróðursetja birkitré.

Ef vel er að gáð sést tréið í grasinu :)

Villi og börn að gróðursetja.
Saturday, 6 September 2008
Komin
Þá erum við Arnar Ingi komin til Íslands og það gekk allt mjög vel og samkvæmt áætlun Iceland Express. Á tímabili í fluginu var svo mikil ókyrrð í lofti að allir þurftu að spenna öryggisbeltin og flugfreyjurnar þurftu einnig að setjast og spenna beltin. Þetta var frekar óþægilegt....eins og að vera á holóttum malarvegi í bíl.
Pabbi tók á móti okkur í Keflavík og mamma tók á móti okkur í Vesturási með flatkökum með hangikjöti, snúðum og kleinuhringjum. Stuttu seinna komu Villi, Hulda og fjölskylda ásamt nýjasta fjölskyldumeðlimnum, Týru litlu. Já, þau erum komin með lítinn hvolp. Alveg svakalegt krútt og þau erum komin á byrjunarreit, þurfa ala upp lítinn óvita, nei, má ekki! Komdu! Ekki naga þetta! Hahahaha!!! Ég held að ég myndi ekki nenna þessu, en sæt er hún litla krílið.
Við Arnar Ingi erum auðvitað vöknuð langt á undan hinum, við erum enn tengd sænska tímanum. Vorum sem sagt vöknuð rúmlega 6 í morgun, 8 á sænskum tíma.
Ætlum að kíkja í Bjarmaland til tengdaforeldranna svo að Arnar Ingi geti nú hitt ömmu og afa í Bjarmó. Svo fer Arnar Ingi til Magnúsar vinar síns og verður líklega með honum stóran part af deginum, fer jafnvel með þeim til Keflavíkur á ljósanótt en þá bara yfir daginn, ekki kvöldið.
Á morgun er svo Toyotadagurinn og hann verður haldinn við Esjuna, leikir, grill og gaman.
Svo er ýmislegt planað í viðbót, Arnar Ingi fer og hittir Atla vin sinn á mánudag, matarboð hjá Villa og Huldu um kvöldið. Svo ætlum við að reyna að fara í bíó í ferðinni og sjá Wall E.
Einnig förum við í afmæliskaffi til Hannesar Arons og hittum líka Hafdísi og Öddu Steinu þar.
Ég fer og hitti eitthvað af vinkonum mínum og svo erum við nánast bara að fara aftur heim! Þetta er nú ekki langur tími sem við erum hérna.

Friday, 5 September 2008
Tuesday, 2 September 2008
Styttist
Það styttist í heimsókn okkar Arnars Inga til Íslands. Þetta kom nú alveg óvænt uppá að við kæmum svona fljótt. Ætlunin var alltaf að kíkja með Arnar Inga til Íslands í vetur og leyfa honum að hitta vini sína og ættingja. Rakel myndi svo kíkja einhvern tímann eftir áramót í eins ferð. En svo ákváðum við að grípa tilboð með Iceland Express sem var í boði og komum þess vegna næsta föstudag 5.september og verðum fram til 11.september. þá ætlar mamma að koma með okkur til Lundar og vera í afmæli Rakelar sem er 12.september, þá hefur mamma verið í afmæli hjá öllum í fjölskyldunni í Lundi ásamt sínu eigin en hún hélt uppá sextugs afmælið hjá okkur.
Helgin var róleg hjá okkur, veðrið var gott og við dúlluðum aðeins í garðinum, krakkarnir í heimsókn hjá vinum sínum og vinir þeirra í heimsókn hjá þeim.
Foreldrafundur í skólanum hjá krökkunum á morgun á sitthvorum tímanum þannig að ég verð á foreldrafundum frá 18:00-20:30! Frekar langt en fínt að hafa þetta samt sama daginn. Arnar Ingi ætlar að fara á skátafund á morgun og er bara spenntur. Fórum á kynningu í síðustu viku um skátastarfið og hann vill endilega prófa.

Subscribe to:
Posts (Atom)