Tuesday, 23 December 2008

Jólakveðjur

Sendum okkar bestu óskir um gleðileg jól og ánægju um hátíðarnar.

Búin að vera þessi venjulegi jólaundirbúningur á þessu heimili. Klára að versla í matinn og fengum íslenskan Ali hamborgarhrygg í Kaupmannahöfn. En mikið var hann dýr þar. það var meiri að segja íslenski verðmiðinn á honum og verðið þar var 3.700 íslenskar krónur. Við borguðum síðan 285 danskar krónur sem gera þetta að ca. 6.600 íslenskum krónum. Við erum að tala um 1,5 kg. En við vonum að hann verði besti hamborgarhryggur sem við höfum smakkað!

Ég er búin að búa til jólaísinn og við erum meiri að segja búin að þjófstarta og smakka hann. Algjört æði!!!

Allir jólapakkar komnir undir jólatréið og mikil eftirvænting í að opna þá. Og mikið er ég fegin því að síðasti jólasveininn er að koma til byggða í nótt! Þá verður ekki meira um að kíkja í skóinn sinn.

Takk fyrir öll jólakortin sem þið hafið sent okkur hingað í Lund.

Hafið það sem allra best yfir jólin,
GLEÐILEG JÓL!

2 comments:

Anonymous said...

Gleðileg jól elskurnar og hafið það roooosalega gott um jólin !!
Jólakveðja frá Fannahvarfsfólkinu

Anonymous said...

Gleðileg jól og hafið það gott um hátíðina
Kveðja Stefán Jansen