Þá er mamma flogin frá okkur enn eina ferðina. Hún var samferða okkur Arnari Inga frá Íslandi þann 11 september og var ekki ákveðin hvenær hún færi heim aftur því hún hafði bara keypt sér aðra leiðina. En hún ákvað sem sagt í gær að fara heim til Íslands í dag. Svo sá hún hálfpartinn eftir því í morgun þegar sólin skein og fallegt haustveður í lofti. Spáin hjá okkur er góð 14-16°c hiti og þurrt.....annað en veðrið á Íslandi, þess vegna var mamma svona hikandi við að fara heim, bara rigning og rok í íslensku veðurspánni.
En hún sér okkur fljótlega aftur því við ætlum að koma til Íslands í vetrarfríi krakkana í skólanum. Helgi fer til Íslands 19.október að vinna og ég og krakkarnir komum 24.október og svo förum við öll saman heim til Lundar þann 1.nóvember. Við gripum þarna frábært tilboð frá Iceland Express og ákváðum þess vegna að koma í heimsókn! Við ætlum að halda jólin hérna heima hjá okkur í Lundi þetta árið!
Sunday, 21 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Tíminn er svo fljótur að líða. Vona að þið hafið átt yndislegan tíma. Hvernig gengur svo ...komin á fullt í golfið ?
Bið að heilsa að sinni ...
Kv. Hafdís og co.
Post a Comment