Wednesday, 18 March 2009

Búðir, búðir, búðir

Við mamma erum sko búnar að vera á heilmiklum þvælingi í búðir þessa dagana. Búnar að fara í tvær verslunarmiðstöðvar og svo löbbuðum við í bæinn heiman frá mér og röltum svo í búðirnar í bænum. Við erum nú reyndar svona mest að skoða, höfum nú ekki fundið mikið til að kaupa, reynum að vera skynsamar og kaupa ekki allt sem okkur langar í. Svo erum við fullt á kaffihúsum og fáum okkur hádegissnarl og bakkelsi.

Við Helgi fórum í Pilates á mánudaginn og mamma passaði! Helgi var nú ekki alveg að finnast Pilates það rétta fyrir sig.....fannst þetta alveg ótrúlega erfitt, það lítur nú samt ekki út fyrir að vera erfitt en leynir á sér.

Rakel er að fara í náttfatapartý á föstudagskvöldið og svo í afmæli á laugardaginn. Við Helgi förum svo í matarklúbb á laugardagskvöldið og mamma passar! Aldeilis munur að hafa mömmu svona á heimilinu.

No comments: