Þá er enn ein helgin að baki og við búin að hafa það mjög gott eins og venjulega.
Fórum í 9 ára afmæli til Óðins á laugardaginn og það var svo gaman að við fórum ekki fyrr en kl. 21:30 um kvöldið.....langsetnir gestir! Og það var svo gott að fá Vogaídýfu, það eru ekki til svona góðar ídýfur hérna í Sverige.
Sunnudagurinn var svo mest leti, fór reyndar í ræktina og svo fórum við aðeins í búðir og fundum strigaskó á Arnar Inga. Hann átti bara ein kuldastígvél sem eru að verða svo slitin að ég bíð eftir að þau rifni í sundur.
Það er svo lokaður skólinn hjá krökkunum í dag og á morgun, reyndar opið frístundaheimilið á morgun en við ætlum að leyfa þeim að vera í fríi, stefnum á það að fara í Skattkammarön sem er risastórt leiksvæði fyrir krakka. Þau fara svo á sundnámskeið í dag. Ég ætla að skreppa í Pilates í kvöld, það er í boði einu sinni í viku í Nautilus stöðinni þar sem ég æfi. Eins og áður þá er ég svakalega dugleg að æfa en það er eins og ég sé úr blýi, allt spik situr pikkfast á mér! Óþolandi!
Og svo er von á mömmu í heimsókn á föstudaginn 13.mars og hún ætlar að stoppa hjá okkur til 23.mars....gaman, gaman....við getum farið á smá búðarráp og kíkt á hvað er að gerast í vortískunni. Reyndar hef ég mest gaman að því að kíkja í svona búsáhalda og skrautvörubúðir....þá þarf maður ekkert að hugsa hvort eitthvað passi á mann eða ekki (oftast ekki!).
Monday, 9 March 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment