Monday, 2 March 2009

Grasekkja

Þá er Helgi að fara til Stokkhólms og verður alla vikuna. Hann fer alltaf mjög reglulega burtu og hefur núna farið eina viku í mánuði undanfarna 5 mánuði. Það er ekki hægt að segja að það sé skemmtilegt að vera hálfgerð "sjómannskona" en nú þegar börnin eru orðin þetta stór þá er ekkert mál að vera svona "einstæður". Það var verra þegar Rakel var 1.árs og Arnar Ingi 3.ára, þá var leiðinlegt að vera einn heima. En mér er sko engin vorkunn, ég á góðan mann og yndisleg börn og við höfum það svo gott hérna í Lundi!

Svo styttist í páskana og þá koma Villi, Hulda og börnin í heimsókn til okkar. Þau verða nú samt burðardýr fyrir okkur því við heimtum að fá íslensk páskaegg, hlakka svo til að fá gesti og páskaegg!

1 comment:

Anonymous said...

Já, páskaeggin.
Hlakka líka til að fá þau.
Þyrfti líka að koma til ykkar smá eggjum. Aldrei of mikið af þeim.
Hvernig væri að senda þau með ÓV?
sk