Mamma kom á föstudaginn og var bara komin hingað í hús um hádegi. Uppúr ferðatöskunni birtust fullt af kræsingum. Páskaegg, pítusósa, vogaídýfa, hvítlauksostur, hangikjötsálegg, hamborgarhryggur, tromp, ópal, staur og þristur.....namminammmmm. Einnig leyndust í töskunni nokkur íslensk slúðurblöð, Vikan og Séð og Heyrt.
Við erum svo sem ekki búnar að gera mikið....fara í göngutúra og svo skruppum við á Nova Lund svæðið og kíktum í nokkrar búðir í gær. Það var reyndar skautadagur hjá Rakel í gær og mamma kom með að horfa á dömuna á skautum. Ég bakaði appelsínuköku og við borðuðum með bestu lyst.
Dagurinn að byrja núna og ekkert sérstakt planað í dag, ég ætla að skreppa aðeins í ræktina og svo verður göngutúr og líklega aðeins kíkt í búðir :) Svo kemur bara í ljós hvað við viljum gera.
Sunday, 15 March 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment