Thursday, 26 March 2009

Hvar er vorið??

Það er ótrúlegt hvað vorið er lengi á leiðinni hingað í Lund þetta árið. Búið að vera ískalt síðustu daga og alveg heilmikið næturfrost. Held bara að páskaliljurnar og túlípanarnir fari að drepast ef þetta heldur svona áfram...vonandi eru þeir ekki dauðir. En reyndar er spáð rigningu og hita næstu daga og vonandi kemur ekki páskahret eftir það.

Mamma er farin og það var ótrúlegt hvað þessir 10 dagar sem hún stoppaði voru fljótir að líða. En Villi og fjölskylda koma til okkar 7.apríl og vera um páskana.

Við mamma lentum nú í smá ævintýri þegar ég var að keyra hana út á Kastrup flugvöll. Við lögðum af stað tímanlega og þegar við vorum að nálgast Eyrarsundsbrúnna þá var skilti þar sem sagði að brúin væri lokuð vegna óhapps! Mamma fékk næstum því hjartaáfall og hélt bara að hún myndi nú missa af vélinni. Jæja, ég keyrði út af hraðbrautinni og við stoppuðum við lestarstöðina í Svågertorp sem er mjög nálægt brúnni. Þar lagði ég bílnum og við fórum með lestinni á Kastrup, það tekur innan við 15 mínútur að fara þaðan á Kastrup. Við sáum síðan bílaröðina út um lestargluggann og mamma var bara fegin að hafa tekið lestina frekar en að hafa beðið eftir að brúin opnaði. Mamma komst í flugið og ég tók lestina til baka til Svågertorp og keyrði svo þaðan heim.

Við fórum í matarklúbb á laugardagskvöldið og það var alveg rosalega gaman eins og venjulega, góður hópur finnst mér. Hún Sigga er algjör snilldarkokkur og maturinn var æðislegur! Og svo var svo gott að vita að mamma var heima að passa.

Rakel litla er heima með hálsbólgu, bara virkilega bólginn háls, vonandi verður ekkert meira úr þessu, ég veit nú alveg hvað er leiðinlegt að fá streptókokkasýkingu. Var alltaf að fá svoleiðis reglulega og svo voru hálskirtlarnir teknir úr mér þegar ég var 25 ára held ég. Slapp svo alveg við streptókokka þangað til í fyrra þegar við fórum til Ameríku... 7,9,13 eins og við segjum stundum.

No comments: