Þá er tíminn að fara að breytast hjá okkur í nótt. Klukkan færist fram um eina klukkustund þannig að það verður 2ja tíma mismunur á Íslandi og Svíþjóð.
Því miður er verið að stela frá okkur einum tíma í nótt og Arnar Ingi er að fara í dagsferð með skátunum á morgun og á að mæta kl.10:00. En þá er klukkan bara 9:00 miðað við tímann í dag. Úpppsss, þá þarf að vekja litla dýrið á sunnudagsmorguninn. Man að í fyrra var einmitt bekkjarafmæli hjá Arnari Inga á þessum degi og það byrjaði einnig kl.10:00. Það var svolítið skrýtið að fara með barnið í afmælisveislu eins og klukkan væri bara 9:00 á sunnudagsmorgni!
Rakel er ennþá með hálsbólgu og það er aðeins farið að renna úr nefinu á henni. Það aftrar henni samt ekki að í dag er nammidagur og það er þegar búið að senda mig út í búð að kaupa nammi! og hún er byrjuð að háma í sig.
Skautanámskeiðið hjá henni kláraðist síðasta laugardag og í dag er sýning en hún missir því miður af henni.
Það var að koma dagskrá með sumarsundnámskeiðum í sundskólanum sem þau eru í og ég er búin að panta fyrir krakkana. Það er ótrúleg ásókn í þessi námskeið því að það er svo lítil sundkennsla í skólunum hérna í Svíþjóð. Þau verða sem sagt á námskeið frá 6.júlí - 24.júlí fimm daga vikunnar.
Svo komum við til Íslands í sumar og vonandi kem ég þeim að á sundnámskeiði á Íslandi meðan við erum þar. Ég og Rakel komum 9.júní og strákarnir koma svo 14.júní. Við förum svo öll saman 2.júlí til Lundar. Við ætlum að stússast í húsamálum í sambandi við Lálandið. Hitta smiði og sjá hvaða framkvæmdir við förum í núna.
Góða helgi öll sömul!
Saturday, 28 March 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment