Sunday, 1 March 2009

Mars!

Það er alveg ótrúlegt að það sé strax kominn mars. Ég er mjög ánægð með það, þá styttist í sumarið. Það er nú búið að vera smá vor í lofti hérna hjá okkur í Lundi, fallegt veður, smá sól á lofti en reyndar pínu kalt. Fuglarnir voru syngjandi á fullu og þá kemur svona vorfílingur í mann.

Allt komið í sinn vanagang eftir Íslandsferðina, sundnámskeið, karate, skautar, skátar og píanókennsla.

Fengum Möggu, Björn Inga og Ragnar Helga í pizzupartý í gærkvöldi og það var mjög gaman. Arnar Ingi og Ragnar Helgi voru í tölvunni allt kvöldið, Rakel fann einhvern mörgæsaleik í tölvunni og eyddi bara nokkuð löngum tíma í tölvu miðað við hana en við fullorðna fólkið spjölluðum og borðuðum óhollustu!

No comments: