Tuesday, 31 March 2009

Yoga

Prófaði yoga í fyrsta skiptið í gærkvöldi....hef farið í Pilates á þessum tíma en kennarinn var veikur þannig að það var yoga í staðinn. Veit ekki hvað ég á að segja....annað hvort fannst mér þetta bara svona leiðinlegt og hægfara eða að kennarinn var ekki nógu góður! Finn alla vega enga þörf fyrir að fara aftur.

Rakel fór til tannlæknis í morgun og er með byrjun á smá skemmd sem á að laga. Hún er samt mjög dugleg að bursta tennurnar, burstar sjálf á morgnanna og svo burstum við tennurnar hennar á kvöldin.

Hún þarf einnig að fara til augnlæknis því að í skoðun hjá skólahjúkkunni kom í ljós að hún sér ekki nógu vel, ekki skrítið svo sem með báða foreldrana hálf sjónlausa áður en við fórum í laseraðgerðina fyrir 8 árum! Við erum bara að bíða eftir að fá tíma hjá augnlækni, fengum bréf að hún yrði kölluð til augnlæknis innan þriggja mánaða.

No comments: