Thursday, 29 May 2008
Komin heim
Við vorum svo heppin að vera í nýju flugleiðavélinni með sjónvarpsskjám fyrir framan hvert sæti. Og ekki nóg með það heldur náðum við Saga class sætum á leiðinni frá Minneapolis til Keflavíkur....þvílíkur lúxus, stærðin á sætunum og svo er svo gott að hafa fótaskemmla. Krakkarnir náðu að sofa í 2 1/2 tíma á leiðinni og við þurftum að vekja þau þegar við lentum í Keflavík.
Svakalegur munur á vélunum, þegar við flugum til Minneapolis þá vorum við í eldgamalli vél með svo stuttu bili á milli sæta að það var ömurlegt og í rúmlega 6 klukkutíma flugi. Það var örugglega einhver spænsk leiguvél því að það var enginn texti á íslensku (eins og með björgunarvesti undir sætum og svoleiðis texti) heldur bara á ensku og spænsku. Svo var loftkælingin eitthvað biluð í þeirri vél og það var hrikalegur hiti. Vélin sem við höfðum komið með frá Köben hét Snorri Þorfinnsson held ég og var bara mjög fín, ágætis bil á milli sæta þar.
En það var stutt stopp í Keflavík og haldið áfram til Köben. Aumingja Rakel var svo þreytt að hún grét og sagði "Ég vil ekki fara í aðra flugvél". En sem betur fer þá sofnaði hún um leið og vélin var komin í loftið og ég vakti hana rétt áður en við lentum í Kaupmannahöfn. Það er ekki hægt að segja annað en að ég hafi verið orðin dofin í lærinu því hún lá allan tímann á mér :)
Við vorum öll svo þreytt þegar heim var komið að við lögðum okkur. Klukkan var þá um fjögur á sænskum tíma en bara 9 um morgunin á USA tíma og við búin að vaka í meira en sólarhring. Rakel svaf til kl.9 um kvöldið og við vöktum Arnar Inga rúmlega hálf tíu. Við Helgi lögðum okkur í 2 tíma.
Fórum svo aftur að sofa um miðnætti. Helgi fór í golf strax í morgun og vaknaði kl.7:30. Ég vaknaði við símann kl. 10:15 og var ennþá alveg dauðþreytt. Vakti svo krakkana stuttu seinna.
Núna eru allir nokkuð hressir, nýbaðaðir og hreinir. Helgi ennþá í golfi og verður í allan dag því að Baldur er fertugur í dag og það var löngu ákveðið að golfa í allan dag, stór hópur af karlmönnum. Ég sjálf er í þvottastússi og að ganga frá úr töskum. Eftir að fara í stór innkaup í matvörubúðinni.
Setjum inn myndir úr ferðinni fljótlega...bless í bili...kveðja frá Lundi.
Tuesday, 27 May 2008
Á leið heim frá USA
Arnar Ingi var bara hress og kátur og hafði greinilega gott af inniverunni á sunnudag. Við fórum í gær á sjávardýrasafn "Underground adventure" sem er í Mall of America og það var svakalega flott...það var eins og að vera niðri í sjónum því að fiskabúrið var allt í kringum mann, fyrir ofan líka. Þarna voru allar tegundir af fiskum, skötur og alls konar hákarlar....voða gaman. Svo var auðvitað farið í nokkur tívolí tæki fyrir fíkilinn hana Rakel.
Fórum svo út að borða á svakalega fínum og flottum veitingastað í miðbæ Minneapolis með Gus, Eygló og strákunum þeirra. Mjög góður matur og flott framreiddur.
Ætlum að fara í 3D (þrívíddarbíó) í dag um skóga Afríku og svo verður bara borðað (búið að gera mikið af því og þarf virkilega að taka á því þegar heim kemur..úfff) og rúntað um staðinn áður en við skilum bílnum út á flugvöll.
Hlakka reyndar svakalega til að komast í mitt rúm og vonandi sofa eitthvað. Við Rakel erum búnar að sofa í sama rúmi í ferðinni og bara með eina stóra sæng og það hentar okkur ekkert sérstaklega því að við viljum báðar vefja fótunum utan um sængina og það gengur ekki mjög vel.
En þessi ferð er búin að vera mjög skemmtileg fyrir utan streptokokkana mína og við erum mjög ánægð. Hafið það gott í dag og heyrumst seinna. kv. Elsa.
Sunday, 25 May 2008
Ekkert gerðist
Búið að vera 27 °c hiti í dag og hálfskýjað. Reyndar spáð "heavy storm" í kringum okkur í kvöld, veit ekki með morgundaginn....aðeins byrjað að hvessa hérna en það kemur svo allt í ljós.
Arnar Ingi eitthvað slappur í dag og við búin að halda honum inni. Höfum farið út til skiptis og núna eru Helgi og Rakel farin í tívolíð í Mall of America.
kv.Elsa
Þrumur og eldingar
Á mánudag er frí í skólum og vinnu því það er Memorial day, dagur til minningar fallinna hermanna.
Over and out....Elsa
Minneapolis
Helgi fór með krakkana í gær í fullt af tækjum, rússíbönum, vatnsrússíbönum, draugahúsum ofl. Ég kíkti í búðir á meðan og keypti smávegis á krakkana og svo fór ég í Victorias secret og náði að kaupa aðeins þar á sjálfa mig.
Sváfum frameftir í dag og tókum því rólega fram yfir hádegi. Kíktum svo í Toys r us og svo að borða á Wendys hamborgarabúllu. Held að stefnan sé að fara aftur í tívolíið á eftir og svo að skoða hákarlasafn sem er líka í Mallinu. Ætlum svo að kíkja í minigolf á morgun (sem er í Mallinu) og láta það svo aðeins ráðast hvað við gerum. Fylgdumst aðeins með eurovision og Helgi og krakkarnir eru núna að leika sér í sundlauginni á hótelinu.
Hafið það gott á Íslandinu, kveðja Elsa
Thursday, 22 May 2008

Arnar að sveifla sér á leikvelli.

P-38 flugvél Richard Ira Bong í WWII safni sem var til minningar um hann. Frægur flugkappi frá Wisconsin sem náði víst að skjóta niður 40 japanskar flugvélar en dó svo 24 ára í tilraunaflugi á þotu.

Arnar að leika sér að skipastiga í líkani af Lake Superior sem var inni í sædýrasafninu.

Lyftubrúin yfir hafnarmynninu. Þetta virðist vera tákn Duluth borgar, a.m.k. er þessi brú á öllum málverkum og ljósmyndum af borginni.
Miðvikudagur
Við byrjuðum á því að fara í dýragarð hér í Duluth og þar voru t.d ljón, tígrisdýr, kengúrur, kanínur, birnir, alls konar eðlur og fuglar, lamadýr, asni, geitur ofl.
Fórum svo í "Mall" til að leita að "klóna" búningi fyrir Arnar Inga (Star Wars búningur). Við fundum enginn leikföng eða aðrar barnavörur en fatnað í þessu Malli og það var ekki ánægður drengur sem var þar á ferð. Við erum nú á leiðinni til Minneapolis á morgun og verðum á hóteli á móti Mall of America þannig að ef að þessi búningur fæst ekki þar þá fæst hann ekki í Americu, segjum við alla vega.
Kíktum í K-Mart og mín tíndi smádrasl í körfuna og eins og ég sagði er ég öll miklu hressari og búin að háma í mig M&M....eina jákvæða við veikindin er að ég borðaði ekkert nammi!
Minneapolis....here we come!
kv.Elsa
Þriðjudagur
Helgi byrjaði á því að fara með börnin á stóran og skemmtilegan leikvöll. Svo fóru þau á safn um seinni heimstyrjöldina og Arnar Ingi skemmti sér vel og skoðaði byssur, flugvélar og stríðsdót....Rakel var nú ekki eins hrifin og lét alveg vita af því.
Eftir safnið var farið aftur á leikvöllinn, svo fengið sér að borða og enn og aftur á leikvöllinn....já, hann var svo skemmtilegur.
Þá kom að því að færa sig úr stað og þau fóru á sædýrasafn að skoða dýrin þar og gefa fiskum að borða og svo voru einhverjar þrautir líka. Skemmtu sér vel þar og ekki skemmdi fyrir að krakkarnir fengu ís að borða þar. Held bara að þau hafi verið ánægð eftir daginn.
kv.Elsa
Tuesday, 20 May 2008
Sjúkrasaga
Sunnudagurinn byrjaði nú ekki vel hjá mér. Svaf illa (nema hvað) og var alveg ferlega aum í hálsinum um nóttina. Fór fram úr og var frekar slöpp og tuskuleg. Átti erfitt með að kyngja. Við höfðum ákveðið að fara í tívolí og dýragarð þennan dag. Helgi, Gus og Eygló fóru með börnin en ég treysti mér ekki. Tók verkjalyf og fór aftur í rúmið kl. 11. dormaði smávegis og fannst ég öll vera hressari kl. 12:30. En nei, kl. 14:00 voru greinilega verkjalyfin algjörlega hætt að virka og ég alveg ómöguleg í hálsinum og greinilega með hita. Fór aftur í rúmið og dormaði alveg til kl. 17:00 þangað til hópurinn kom heim úr skemmtilegri ferð. Var nú orðin viss að þetta væri nú kannski streptokokkasýking því að ég hafði ekki verið með hálsbólgu frá því að hálskirtlarnir voru teknir úr mér fyrir ca. 12 árum.
Helgi kom svo með mér á bráðamóttökuna til að láta kíkja á hálsinn á mér, það var sunnudagur þannig að bráðamóttakan var eini valkosturinn. Vorum í litlum bæ þannig að það var enginn bið og ég mældist með rúmlega 39 stiga hita. Það var tekið sýni úr hálsinum á mér og sett í svona bráðabirgðamælingu sem er alveg 95% að marka. Síðan var sýnið sent í nákvæmari mælingu daginn eftir. En bráðabirgðamælingin kom neikvæð út og læknirinn var nú svolítið hissa miðað við hvernig hálsinn á mér leit út, en líklega væri þetta þá bara vírus. Ég fékk nú samt recept fyrir pensilíni ef að mér myndi versna.
En á mánudagsmorguninn þá fannst mér ég vera aðeins betri þó svo að mér væri mjög illt í hálsinum og greinilega enn með hita (læknirinn sagði mér að vera dugleg að taka hitalækkandi lyf). Eins og áður sagði keyrðum við til Duluth. Fannst eins og ég væri aftur verri í hálsinum seinnipartinn. Kíktum svo á e-mailið um kvöldið og þar voru skilaboð frá Eygló að það hefði verið hringt frá læknastöðinni og við ættum að hringja til þeirra. Það var svo búið að loka þannig að við hringdum strax kl. 8 í morgun (þriðjudag). Og þá kom í ljós að ég er með streptókokkasýkingu í hálsi. Ekki furða þó að mér batnaði ekkert. Og ég auðvitað í þessum 5% sem getur skeikað á bráðabirgðaprófinu. Hefði getað byrjað á pensilíni sólarhring fyrr. En núna er alla vega búið að leysa út pensilínið og ég búin að taka eina töflu. Vona bara að ég geti gert eitthvað skemmtilegt á morgun með fjölskyldunni. Helgi ætlar að kíkja á eitthvað krakkasafn eða sjávarsafn eða jafnvel fara í siglingu með börnin, kemur í ljós, segi frá því seinna hvað var gert.
En vonandi hafið þið það gott, kveðja frá sjúklingnum, Elsa.
Monday, 19 May 2008
Mánudagur
Erum nú á Hóteli sem heitir Hampton Inn og er alveg mjög fínt. Það er við vatn sem heitir Lake Superior og það er göngustígur meðfram vatninu, ætlum að prófa hann! Farið með krakkana á leikvöll og svo út að borða á mexíkönskum veitingastað.
kv.Elsa
Como park

Sunnudagurinn var notaður í að keyra til Minneapolis og fara í dýragarð og tívolí. Á leiðinni þangað vara stoppað í fallegum bæ sem heitir Stillwater og fengið kaffi og með því á Starbucks.
Rakel var alveg óstöðvandi í tækjunum og vildi bara meira og meira. Arnar Ingi var heldur varkárari og hélt að ef hann færi í hin ýmsu tæki þá myndi hann bara gubba!
Þau fóru svo í vatnsblöðrustríð við pabba sinn í sér bás fyrir svoleiðis.....skemmtu sér alveg konunglega.
kv.Elsa
Sunday, 18 May 2008
Laugardagur
Eftir það fórum við í Wild Mountain park sem er með go-kart og sundlaugum og svo er nokkurs konar snjósleði sem maður fer upp með skíðalyftu en rennir svo á dekkjum niður steinbraut. Á veturna er þarna skíðasvæði.
Fórum í Wal Mart og keyptum pizzu sem maður velur sér áleggið á og tekur svo heim og bakar sjálfur í ofni.....bara svakalega góð, heimabökuð. Eftirrétturinn var svo Ben&Jerrys ís.
P.S Rakel var strax hress morguninn eftir flugið, sárið var aumt og við spreyjuðum sótthreinsandi á það og nú er hún í góðum málum. Hún vaknaði reyndar 4:30 á amerískum tíma og svo 6:00 á laugardagsmorgun en svaf svo til 7:00 sunnudag.
Saturday, 17 May 2008
Friday, 16 May 2008
Ferðasagan
Lentum í Keflavík og hittum þar nokkra sem við þekkjum....auðvitað! Flugvélin til Minneapolis var síðan gömul og þröng! En sem betur fer fengum við aftur heila sætaröð fyrir okkur.
Það var alveg funhiti og mollulegt loft í vélinni og ekki mjög þægilegt. Rakel hafði dottið og meitt sig á olnboga fyrir stuttu og var mjög illt í olnboganum og við vorum hrædd um að það væri jafnvel farið að grafa. Svo fór hún að kvarta að sér væri illt í hálsinum og liði ekki vel!
Hún var nú ósköp ræfilsleg og þreytt. Svo rak hún olnbogann á sér í og það fór að blæða....aumingja krílið okkar!
Hún náði loksins að sofna og svaf órólega í um 1 1/2 tíma. Svo fórum við aftast í vélina á klósett, og þar var mjög svalt og fínt loft! Ef maður hefði vitað það þá hefðum við sko farið aftar og Rakel líklega liðið betur.
Náðum í bílaleigubílinn og fengum minivan, Chrysler town & country. Ágætisbíll en alveg kraftlaus. En sagan er ekki alveg búin.....hún Rakel okkar var ekki enn nógu hress og sagði að sér liði illa. Ég hentist afturí og hún náði að gubba í poka hjá mér. Þá leið henni betur og náði að sofna í hálftíma í bílnum áður en við komum á leiðarenda til Gus og Eyglóar. Við komum þangað kl.3:30 að nóttu á sænskum tíma.Langt ferðalag hjá okkur.
En hér erum við núna í góðu yfirlæti og 20°c hita. Sæl að sinni, ætlum að fara í bíltúr og skoða okkur um.....kaupa kannski Dairy Queen ís! nammi, namm......
Wednesday, 14 May 2008
Frí
Er svona nokkurn veginn búin að pakka og við verðum með 3 töskur (við megum vera með 2 á mann, s.s 8 töskur!) Reyndar er smá svindl hjá okkur því að við höfum eina minni tösku ofan í annarri á leiðinni til Ameríku. Já, við búumst nú við að versla eitthvað! Svo telur nú handfarangurinn eitthvað því að það verður fartölvutaska, nestistaska, barnataska (með Nintendo og litabókum og svoleiðis) og svo taska með myndavél og videótökuvél og einhverju smádrasli í viðbót.
Veit ekki hvernig nettengingin verður hjá okkur, en ég blogga ef tækifæri gefst og vonandi náum við að setja inn myndir. Bless í bili. Komum heim aftur 28.maí.
Monday, 12 May 2008
Það styttist
Þetta verður langt ferðalag því að það er hátt í 7 tíma flug til St.Paul og við þá búin að fljúga frá Kaupmannahöfn til Íslands. En við erum með stór börn þannig að þau verða líklega til friðs, það er bara svo leiðinlegt að sitja í þessum litlu flugvélasætum svona lengi.
Matarboðið hjá matarklúbbnum síðastliðinn föstudag heppnaðist mjög vel og við skemmtum okkur vel.
Fórum svo í grill til Minna og Agnesar á laugardagskvöldinu.
Við vorum að kíkja á dagatalið hjá okkur og sjáum að næsta helgi sem við erum "laus" eða ekkert planað er 1-3.ágúst(verslunarmannahelgin).
Við erum auðvitað að fara núna til Ameríku, komum svo heim og förum í fertugsafmæli strax helgina eftir. Síðan fer Helgi aftur til Ameríku í golfferð helgina þar á eftir. Svo koma gestir, og svo koma aftur gestir og svo förum við í Legoland og svo koma aftur gestir og svo förum við í sumarhús í Danmörku og svo er matarboð hjá matarklúbbnum. Veit ekki hvort þið skiljið þetta hjá mér en það er allavega nóg að gera hjá okkur í sumar. Gaman, gaman.
Sunday, 11 May 2008
Saturday, 10 May 2008
Hreinsunardagur
Í dag var hreinsunardagur á sameiginlega svæðinu milli húsanna í götunni. Allir sem vettlingi gátu valdið komu út með garðáhöldin sín og hreinsuðu burt illgresið. Þetta tók tvo tíma en maður varð fljótt lúinn því að það var nánast of heitt úti.
Matarboð
Allir búnir að borða. Fordrykkurinn og forrétturinn var borðaður úti og svo var farið inn og snæddur aðalrétturinn og eftirrétturinn. Skemmtilegt kvöld!
Friday, 9 May 2008
Löpa genom spridaren
Krakkarnir fengu vini sína Bernhard og Karolina (sem eru systkini) í heimsókn til að hlaupa gegnum úðarann. Nú er mikið gargað og gólað og allt á sænsku náttúrulega.
Túlípanarnir mínir í fullum blóma, það fór að sjást í laukana strax í byrjun febrúar og núna eru þeir búnir að vera flottir í næstum mánuð. Það er reyndar kominn tími á að fara að slá grasið aftur, sló í byrjun síðustu viku. Vökvaði grasið og tréin í gær, það er ekkert spáð neinni vætu á næstunni. Krakkarnir ætla að fá að hlaupa í gegnum vökvunargræjuna í dag eftir skólann, þau bíða spennt eftir því.
Matarboð í kvöld hjá okkur og svo hreinsunardagur í götunni á morgun. Góða helgi!
Tuesday, 6 May 2008
Góða veðrið
Verðum með matarboð á föstudagskvöldið og aldrei að vita nema við borðum bara úti í garði.
Nú eru mamma, Hulda og börn að fara aftur til Íslands á morgun, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, en auðvitað stungum við hjónin af í 3 daga af þessum 10 dögum sem þau stoppuðu. Held bara að allir séu ánægðir með þennan tíma og að hafa fengið sumarblíðu þessa daga. Það kom aðeins einn rigningardagur en annars búið að vera milli 17-21°c hiti allan tímann (og þá er ég að tala um í skugga).
Sunday, 4 May 2008
Sunnudagur
Við tókum lest til Stokkhólms og það er mjög þægilegur ferðamáti. Stór og fín sæti, hægt að halla þeim aftur og svo er veitingavagn. Á brúðkaupsafmælinu 1.maí fórum við út að borða á veitingastað sem er með fullt af smáréttum. Maður átti að merkja við það sem maður vildi á matseðli og svo var dælt í mann alskyns kræsingum. Mjög gott. Eftir matinn röltum við um bæinn og ákváðum að fara í bíó þegar við löbbuðum fram hjá bíói. Það voru alveg ótrúlega margir í bíó og við vorum líka á síðustu stundu þannig að það var uppselt á myndina sem við vildum sjá. Tókum við þá bara næstu mynd sem var líka þetta ömurleg. Varúð! Ekki sjá "Be kind rewind" myndina.
Daginn eftir gengum við í bæinn og fórum að skoða Vasasafnið. Þetta er skip sem var byggt 1628 og átti að nota í hernaði gegn Pólverjum. Skipið var rosa stórt og lagt mjög mikið í það, allt útskorið og flott. Þegar það lagði svo af stað í hernaðarferð þá komst það ekki einu sinni út fjörðinn í Stokkhólmi heldur sökk því að þyngdarpunkturinn var vitlaus. Það lág á hafsbotni í 300 ár og var dregið á land 1961 og byggt utan um það safn og sagan sögð. Svaka flott.
Við gengum svo um Gamla Stan og fórum á kaffihús og enduðum síðan í bátsiglingu um skerjagarðinn og fengum þríréttaða máltíð. Þetta var mjög góður dagur en við vorum nú frekar þreytt þegar við löbbuðum inn á hótelið kl. 11 um kvöldið.
Heimferðardaginn tókum við svo rólega, fórum í morgunverð, bókuðum okkur út og svo í Spa sem var á hótelinu. Fórum á Taco bar og snæddum og svo heim með lestinni. Mjög vel heppnuð ferð.
Dagurinn í dag (4.maí) er búinn að vera alveg meiriháttar. Sól í allan dag og alveg logn og ég held að hitinn hafi komist alla vega í 25°c. Allir í stuttbuxum og stuttermabol og við búin að vera úti í allan dag. Bjuggum svo til pizzu og borðuðum úti í garði.
Friday, 2 May 2008
Thursday, 1 May 2008
Be kind rewind
Skelltum okkur í bíó í Stokkhólmi á alveg hundleiðinlega mynd sem heitir Be kind rewind, það voru svo margir í bíó að það var uppselt á þá mynd sem við ætluðum upphaflega á þannig að við fóru á þessa ömurlegu mynd!
Réttur 6 á Restaurangen(tm)
Bara 1 réttur eftir.. Þessi staður sérhæfir sig í að bjóða upp á fullt af smáréttum sem allir heita eftir "bragði". Þessi sem við erum að fara að gæða okkur á heitir "Jordnöt".
Á leið til Stokkhólms
Þá erum við loksins á leiðinni til Stokkhólms. Tókum lestina sem er 4 tíma á leiðinni. Mjög þægilegur ferðamáti, fín og breið sæti sem hægt er að halla aftur, hægt að fá sér ávexti, safa og kaffi í lestinni. Svo er veitingavagn sem maður getur keypt samlokur og ýmiskonar örbylgjurétti.