Ég lá bara í rúminu og svaf góðan hluta úr deginum. Kíkti pínu á sjónvarpið, las, dottaði og tók mitt pensilín.
Helgi byrjaði á því að fara með börnin á stóran og skemmtilegan leikvöll. Svo fóru þau á safn um seinni heimstyrjöldina og Arnar Ingi skemmti sér vel og skoðaði byssur, flugvélar og stríðsdót....Rakel var nú ekki eins hrifin og lét alveg vita af því.
Eftir safnið var farið aftur á leikvöllinn, svo fengið sér að borða og enn og aftur á leikvöllinn....já, hann var svo skemmtilegur.
Þá kom að því að færa sig úr stað og þau fóru á sædýrasafn að skoða dýrin þar og gefa fiskum að borða og svo voru einhverjar þrautir líka. Skemmtu sér vel þar og ekki skemmdi fyrir að krakkarnir fengu ís að borða þar. Held bara að þau hafi verið ánægð eftir daginn.
kv.Elsa
Thursday, 22 May 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment