Þá er komið að því að fara að pakka og koma sér aftur heim frá Minneapolis. Fljúgum í kvöld og lendum í Keflavík kl.6:20. Tökum þaðan vél til Kaupmannahafnar kl.7:45. Verðum sem sagt komin heim til okkar um miðjan dag á morgun á staðartíma....úff....langt ferðalag.
Arnar Ingi var bara hress og kátur og hafði greinilega gott af inniverunni á sunnudag. Við fórum í gær á sjávardýrasafn "Underground adventure" sem er í Mall of America og það var svakalega flott...það var eins og að vera niðri í sjónum því að fiskabúrið var allt í kringum mann, fyrir ofan líka. Þarna voru allar tegundir af fiskum, skötur og alls konar hákarlar....voða gaman. Svo var auðvitað farið í nokkur tívolí tæki fyrir fíkilinn hana Rakel.
Fórum svo út að borða á svakalega fínum og flottum veitingastað í miðbæ Minneapolis með Gus, Eygló og strákunum þeirra. Mjög góður matur og flott framreiddur.
Ætlum að fara í 3D (þrívíddarbíó) í dag um skóga Afríku og svo verður bara borðað (búið að gera mikið af því og þarf virkilega að taka á því þegar heim kemur..úfff) og rúntað um staðinn áður en við skilum bílnum út á flugvöll.
Hlakka reyndar svakalega til að komast í mitt rúm og vonandi sofa eitthvað. Við Rakel erum búnar að sofa í sama rúmi í ferðinni og bara með eina stóra sæng og það hentar okkur ekkert sérstaklega því að við viljum báðar vefja fótunum utan um sængina og það gengur ekki mjög vel.
En þessi ferð er búin að vera mjög skemmtileg fyrir utan streptokokkana mína og við erum mjög ánægð. Hafið það gott í dag og heyrumst seinna. kv. Elsa.
Tuesday, 27 May 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Góða ferð. Vona að ferðalagið gangi vel.
Kv. Hafdís
Post a Comment