Monday, 19 May 2008

Mánudagur

Lögðum af stað kl.11 til Duluth sem er rúmlega tveggja tíma keyrsla frá Osceola. Stoppuðum á KFC á leiðinni og fengum okkar að borða. Þar var hægt að fara á hlaðborð með salati, makkarónum með osti, hrísgrjónum, kjúklingabitum og ýmsu fleira....vissi ekki að þetta væri á KFC. Það er svo sem ágætis forvörn að fara á svona staði því að það eru til svo margir "stórir" ameríkanar og maður fyllist bara ...... er þá að tala um virkilega stórir. Það kom ein kona rúllandi í rafmagnshjólastól inn á KFC meðan við vorum að borða.....held að hún hafi ekki verið lömuð, getur líklega bara ekki staðið upp! Svo eru þessir týpísku amerísku kallar....með derhúfu, ístru og í gallabuxum og köflóttri skyrtu, hélt stundum að svona týpur væru búnar til fyrir bíómyndir en nei....greinilega ekki! Gaman að þessu.

Erum nú á Hóteli sem heitir Hampton Inn og er alveg mjög fínt. Það er við vatn sem heitir Lake Superior og það er göngustígur meðfram vatninu, ætlum að prófa hann! Farið með krakkana á leikvöll og svo út að borða á mexíkönskum veitingastað.
kv.Elsa

No comments: