Tuesday, 6 May 2008

Góða veðrið

Alveg dásamlegir dagar. Það er sko ekkert lát á blíðunni hérna í Lundi. Áfram er bara verið úti að leika og borða og farið í göngutúra. Veðurspáin fyrir næstu daga er heldur ekkert slor. Spáð 20-25°c hita og sól fram á sunnudag (spáin nær ekki lengra). Fínt fyrir okkur því það er hreinsunardagur í götunni okkar á laugardaginn og það er frábært að hafa veðrið í lagi á svona degi.

Verðum með matarboð á föstudagskvöldið og aldrei að vita nema við borðum bara úti í garði.

Nú eru mamma, Hulda og börn að fara aftur til Íslands á morgun, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, en auðvitað stungum við hjónin af í 3 daga af þessum 10 dögum sem þau stoppuðu. Held bara að allir séu ánægðir með þennan tíma og að hafa fengið sumarblíðu þessa daga. Það kom aðeins einn rigningardagur en annars búið að vera milli 17-21°c hiti allan tímann (og þá er ég að tala um í skugga).

1 comment:

Anonymous said...

Ertu til í að hætta að blogga um veðrið....thíhí djók:) Bara abbó:)

kv.Ásdís