Sunday, 4 May 2008

Sunnudagur

Þá erum við komin heim hjónin frá Stokkhólmi. Ferðin var mjög vel heppnuð og ekki annað hægt að segja en við séum ánægð. Mamma og Hulda sáum um krakkaskarann á meðan og það gekk allt mjög vel.

Við tókum lest til Stokkhólms og það er mjög þægilegur ferðamáti. Stór og fín sæti, hægt að halla þeim aftur og svo er veitingavagn. Á brúðkaupsafmælinu 1.maí fórum við út að borða á veitingastað sem er með fullt af smáréttum. Maður átti að merkja við það sem maður vildi á matseðli og svo var dælt í mann alskyns kræsingum. Mjög gott. Eftir matinn röltum við um bæinn og ákváðum að fara í bíó þegar við löbbuðum fram hjá bíói. Það voru alveg ótrúlega margir í bíó og við vorum líka á síðustu stundu þannig að það var uppselt á myndina sem við vildum sjá. Tókum við þá bara næstu mynd sem var líka þetta ömurleg. Varúð! Ekki sjá "Be kind rewind" myndina.

Daginn eftir gengum við í bæinn og fórum að skoða Vasasafnið. Þetta er skip sem var byggt 1628 og átti að nota í hernaði gegn Pólverjum. Skipið var rosa stórt og lagt mjög mikið í það, allt útskorið og flott. Þegar það lagði svo af stað í hernaðarferð þá komst það ekki einu sinni út fjörðinn í Stokkhólmi heldur sökk því að þyngdarpunkturinn var vitlaus. Það lág á hafsbotni í 300 ár og var dregið á land 1961 og byggt utan um það safn og sagan sögð. Svaka flott.

Við gengum svo um Gamla Stan og fórum á kaffihús og enduðum síðan í bátsiglingu um skerjagarðinn og fengum þríréttaða máltíð. Þetta var mjög góður dagur en við vorum nú frekar þreytt þegar við löbbuðum inn á hótelið kl. 11 um kvöldið.

Heimferðardaginn tókum við svo rólega, fórum í morgunverð, bókuðum okkur út og svo í Spa sem var á hótelinu. Fórum á Taco bar og snæddum og svo heim með lestinni. Mjög vel heppnuð ferð.

Dagurinn í dag (4.maí) er búinn að vera alveg meiriháttar. Sól í allan dag og alveg logn og ég held að hitinn hafi komist alla vega í 25°c. Allir í stuttbuxum og stuttermabol og við búin að vera úti í allan dag. Bjuggum svo til pizzu og borðuðum úti í garði.

1 comment:

Anonymous said...

Vá frábær ferðin ykkar!! rosalega náðuð þið að gera mikið:)

Öfunda ykkur endalaust af veðrinu!!!! get samt ekki kvartað....miðað við íslenskan mælkvarða er gott hér..........en ekki miðað við sænskan:)

kv.Ásdís