Friday, 9 May 2008

Túlípanarnir mínir í fullum blóma, það fór að sjást í laukana strax í byrjun febrúar og núna eru þeir búnir að vera flottir í næstum mánuð. Það er reyndar kominn tími á að fara að slá grasið aftur, sló í byrjun síðustu viku. Vökvaði grasið og tréin í gær, það er ekkert spáð neinni vætu á næstunni. Krakkarnir ætla að fá að hlaupa í gegnum vökvunargræjuna í dag eftir skólann, þau bíða spennt eftir því.

Matarboð í kvöld hjá okkur og svo hreinsunardagur í götunni á morgun. Góða helgi!

1 comment:

Anonymous said...

Sæl Elsa ..

Ég sé að vorið er ennþá á undan hjá þér ... ég er enn að bíða eftir að vorlaukarnir springi út. En þetta er að koma. Njóttu þín í sólinni. P.s. held að það sé að fara rigna hérna hjá okkur
Kv. Hafdís