Monday, 12 May 2008

Það styttist

já, það styttist heldur betur í Ameríkuferðina okkar.Við förum á fimmtudaginn 15.maí og fljúgum fyrst til Keflavíkur og þaðan til St.Paul í Minneapolis. Allt orðið klárt, búið að panta hótel og bílaleigubíl.
Þetta verður langt ferðalag því að það er hátt í 7 tíma flug til St.Paul og við þá búin að fljúga frá Kaupmannahöfn til Íslands. En við erum með stór börn þannig að þau verða líklega til friðs, það er bara svo leiðinlegt að sitja í þessum litlu flugvélasætum svona lengi.

Matarboðið hjá matarklúbbnum síðastliðinn föstudag heppnaðist mjög vel og við skemmtum okkur vel.
Fórum svo í grill til Minna og Agnesar á laugardagskvöldinu.

Við vorum að kíkja á dagatalið hjá okkur og sjáum að næsta helgi sem við erum "laus" eða ekkert planað er 1-3.ágúst(verslunarmannahelgin).
Við erum auðvitað að fara núna til Ameríku, komum svo heim og förum í fertugsafmæli strax helgina eftir. Síðan fer Helgi aftur til Ameríku í golfferð helgina þar á eftir. Svo koma gestir, og svo koma aftur gestir og svo förum við í Legoland og svo koma aftur gestir og svo förum við í sumarhús í Danmörku og svo er matarboð hjá matarklúbbnum. Veit ekki hvort þið skiljið þetta hjá mér en það er allavega nóg að gera hjá okkur í sumar. Gaman, gaman.

1 comment:

Anonymous said...

Það er heldur betur nóg að gera hjá ykkur í sumar :o) AMERÍKA ... oh ... þetta verður bara gaman hjá ykkur. Skemmti þið ykkur rosalega vel. Versli þið svo ekki yfir ykkur ... heheeh.
Kv. Hafdís