Pensilínið greinilega farið að virka og ég öll hressari. Nú er bara eins og ég sé með pínu hálsbólgu.
Við byrjuðum á því að fara í dýragarð hér í Duluth og þar voru t.d ljón, tígrisdýr, kengúrur, kanínur, birnir, alls konar eðlur og fuglar, lamadýr, asni, geitur ofl.
Fórum svo í "Mall" til að leita að "klóna" búningi fyrir Arnar Inga (Star Wars búningur). Við fundum enginn leikföng eða aðrar barnavörur en fatnað í þessu Malli og það var ekki ánægður drengur sem var þar á ferð. Við erum nú á leiðinni til Minneapolis á morgun og verðum á hóteli á móti Mall of America þannig að ef að þessi búningur fæst ekki þar þá fæst hann ekki í Americu, segjum við alla vega.
Kíktum í K-Mart og mín tíndi smádrasl í körfuna og eins og ég sagði er ég öll miklu hressari og búin að háma í mig M&M....eina jákvæða við veikindin er að ég borðaði ekkert nammi!
Minneapolis....here we come!
kv.Elsa
Thursday, 22 May 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment