Jæja, nú erum við komin í frí. Búin að sækja börnin í skólann og svo er bara að fara með þau í klippingu á eftir.
Er svona nokkurn veginn búin að pakka og við verðum með 3 töskur (við megum vera með 2 á mann, s.s 8 töskur!) Reyndar er smá svindl hjá okkur því að við höfum eina minni tösku ofan í annarri á leiðinni til Ameríku. Já, við búumst nú við að versla eitthvað! Svo telur nú handfarangurinn eitthvað því að það verður fartölvutaska, nestistaska, barnataska (með Nintendo og litabókum og svoleiðis) og svo taska með myndavél og videótökuvél og einhverju smádrasli í viðbót.
Veit ekki hvernig nettengingin verður hjá okkur, en ég blogga ef tækifæri gefst og vonandi náum við að setja inn myndir. Bless í bili. Komum heim aftur 28.maí.
Wednesday, 14 May 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Ég segi bara góða ferð og skemmtun í USA !!! Njótið þess að vera í fríi og farið extra varlega.
Með kveðju
Guðrún S
Góða ferð og góða skemmtun:)
kv.ásdís
Post a Comment