þá erum við komin heim til okkar í Lund. Alltaf gott að komast heim þó svo að maður sé ánægður með ferðina.
Við vorum svo heppin að vera í nýju flugleiðavélinni með sjónvarpsskjám fyrir framan hvert sæti. Og ekki nóg með það heldur náðum við Saga class sætum á leiðinni frá Minneapolis til Keflavíkur....þvílíkur lúxus, stærðin á sætunum og svo er svo gott að hafa fótaskemmla. Krakkarnir náðu að sofa í 2 1/2 tíma á leiðinni og við þurftum að vekja þau þegar við lentum í Keflavík.
Svakalegur munur á vélunum, þegar við flugum til Minneapolis þá vorum við í eldgamalli vél með svo stuttu bili á milli sæta að það var ömurlegt og í rúmlega 6 klukkutíma flugi. Það var örugglega einhver spænsk leiguvél því að það var enginn texti á íslensku (eins og með björgunarvesti undir sætum og svoleiðis texti) heldur bara á ensku og spænsku. Svo var loftkælingin eitthvað biluð í þeirri vél og það var hrikalegur hiti. Vélin sem við höfðum komið með frá Köben hét Snorri Þorfinnsson held ég og var bara mjög fín, ágætis bil á milli sæta þar.
En það var stutt stopp í Keflavík og haldið áfram til Köben. Aumingja Rakel var svo þreytt að hún grét og sagði "Ég vil ekki fara í aðra flugvél". En sem betur fer þá sofnaði hún um leið og vélin var komin í loftið og ég vakti hana rétt áður en við lentum í Kaupmannahöfn. Það er ekki hægt að segja annað en að ég hafi verið orðin dofin í lærinu því hún lá allan tímann á mér :)
Við vorum öll svo þreytt þegar heim var komið að við lögðum okkur. Klukkan var þá um fjögur á sænskum tíma en bara 9 um morgunin á USA tíma og við búin að vaka í meira en sólarhring. Rakel svaf til kl.9 um kvöldið og við vöktum Arnar Inga rúmlega hálf tíu. Við Helgi lögðum okkur í 2 tíma.
Fórum svo aftur að sofa um miðnætti. Helgi fór í golf strax í morgun og vaknaði kl.7:30. Ég vaknaði við símann kl. 10:15 og var ennþá alveg dauðþreytt. Vakti svo krakkana stuttu seinna.
Núna eru allir nokkuð hressir, nýbaðaðir og hreinir. Helgi ennþá í golfi og verður í allan dag því að Baldur er fertugur í dag og það var löngu ákveðið að golfa í allan dag, stór hópur af karlmönnum. Ég sjálf er í þvottastússi og að ganga frá úr töskum. Eftir að fara í stór innkaup í matvörubúðinni.
Setjum inn myndir úr ferðinni fljótlega...bless í bili...kveðja frá Lundi.
Thursday, 29 May 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Velkomin heim. Ekkert smá gaman að fá að fylgjast með ykkur :o) Þið eruð sko alveg frábærir bloggarar.
Kv. Hafdís
Gaman að fylgjast með ferðalaginu ykkar og velkomin heim:)
kv.Ásdís
Post a Comment